þriðjudagur, 2. september 2008

Hæ allir :D

Vildum bara segja: Velkomnar aftur til starfa ;)

Næsta föstudag ætlum við auðvitað að halda uppi heiðri bekkjarins, sem skemmtilegasti bekkurinn, og fjölmenna á fyrsta bjórkvöld annarinnar. Svo klárum við leikinn á Broadway þar sem dansað verður langt fram á rauða nótt við ljúfa tóna Sálainnar.

Einnig erum við nokkrar sem erum komnar með hugann á Laugarvatn (hugsum auðvitað ekkert um neitt annað en djammið hehe ;)). Búningahugmyndin í ár er að vera sætar Bíflugur hehe, erum jafnvel búnar að hanna búning. Ætlum í leiðangur í dag og sjá hvort hugmyndirnar okkar ganga ekki upp.

Endilega látið í ykkur heyra með föstudaginn og auðvitað hvort allir ætli ekki að mæta á Laugarvatn í sætum búningum :D

Heyrumst og sjáumst
Bergdís og Lára :D:D

1 ummæli:

Ella Rós sagði...

Þið eruð bara dásamlegar haha strax komnar í djammgírinn. Mér líst bara vel á ykkur og verð með ykkur í huganum. Kemst víst ekki með. Svo er bara að bíða og sjá hvort bíflugnadæmið gangi upp en snilldar hugmynd.