föstudagur, 19. september 2008

Sameining

 Jæja skvísur... 


Ég var að búa til nýja síðu fyrir nýja stóra bekkinn okkar :D:D

slóðin er www.superleikskolagellur.blogcentral.is og það ættu allir að komast inn á sínu nafni og lykilorðið er kenno.

Málið er reyndar með nöfnin er að ef þið heitið margar það sama þá eru bæði nöfnin og ef þið eruð kallaðar eitthvað annað en þið heitið þá notaði ég frekar það sem þið eruð kallaðar... 

hahaha ef þið skiljið ekki þá bara látið mig vita ;)

kv. Lára 


fimmtudagur, 11. september 2008

Laugarvatn

þriðjudagur, 2. september 2008

Hæ allir :D

Vildum bara segja: Velkomnar aftur til starfa ;)

Næsta föstudag ætlum við auðvitað að halda uppi heiðri bekkjarins, sem skemmtilegasti bekkurinn, og fjölmenna á fyrsta bjórkvöld annarinnar. Svo klárum við leikinn á Broadway þar sem dansað verður langt fram á rauða nótt við ljúfa tóna Sálainnar.

Einnig erum við nokkrar sem erum komnar með hugann á Laugarvatn (hugsum auðvitað ekkert um neitt annað en djammið hehe ;)). Búningahugmyndin í ár er að vera sætar Bíflugur hehe, erum jafnvel búnar að hanna búning. Ætlum í leiðangur í dag og sjá hvort hugmyndirnar okkar ganga ekki upp.

Endilega látið í ykkur heyra með föstudaginn og auðvitað hvort allir ætli ekki að mæta á Laugarvatn í sætum búningum :D

Heyrumst og sjáumst
Bergdís og Lára :D:D

mánudagur, 30. júní 2008

Elsku vinkonur

Langaði bara að segja ykkur frá því að ég sakna ykkar!

Vonandi fer að líða að hitting... ekki það að ég sé að plana neitt... en hver veit hvað manni gæti dottið í hug ;)
Vonandi hafiði það sem allra best,
ykkar
Lára ;*

fimmtudagur, 15. maí 2008

21 klukkustund í FRÍÍÍÍÍ!!!

Þrátt fyrir að allir séu með hugann við próflok og Pallaball þá viljum við minna á að stefnan er að greiða fyrir "gala"kvöldið okkar á morgun eftir prófið. Verðið er enn 2500kr og það má endilega leggja inn á reikning 0315-13-130137 með kennitölu 280586-2859.

Gangi ykkur vel!! ekki deyja úr spenningi og verið hress ;***

Lovvvvvve

Lára

þriðjudagur, 13. maí 2008

Prófloka djamm

Jæja krakkar mínir núna fer að líða að próflokum og við ætlum að sjálfsögðu að lyfta okkur upp ;) Það er bjórkvöld upp í skóla á föstudaginn og svo á að skella sér á Palla ball á Nasa, það kostar 1500 kr á ballið og það er rúta frá skólanum á ballið. Ráðlegt er að kaupa miða í forsölu sem verður til 16. Viktoría okkar sagðist halda að það væri verið að selja miða upp í skóla á morgun eða á fimmtudag, en það er líka hægt að kaupa miða á Nasa.

Það væri gaman að sem flestir úr bekknum létu sjá sig ;)

Hlakka til að sjá ykkur öll á föstudaginn, gangi ykkur vel að læra ;)

kv. Bergdís

þriðjudagur, 6. maí 2008

Galakvöld

Kæru bekkjarsystur og hinn ætleiddi

Föstudaginn 23. maí verður haldin uppskeruhátíð bekkjarins. Það er mæting til Steinunnar (líklega) kl 18 STUNDVÍSLEGA. Þemað verður gala með Hawaii ívafi ;) Jóhanna og Bergdís munu sjá um skreytingarnar sem fulltrúar skreytinganefndar.
Það verður fordrykkur við komu og síðan ætlum við að elda okkur dýrindis mat sem verður í höndum okkar frábæru matarnefndar, sem skipa Sigríði Sunnu, Hilmar Laxdal og Steinunni Magna.

Þessi veisluhöld munu kosta okkur 2500 kr á mann og síðasti borgunar dagur er 16.maí, strax eftir próf. Þó væri gott að fá að vita fyrir þann tíma hvort fólk ætli að láta sjá sig. Endilega kommentið og tilkynnið þátttöku. Lára mun taka við greiðslum sem gjaldkeri hópsins.


Endilega ef þið hafið einhver skemmtiatriði, gullkorn, myndir eða eitthvað sem tengist þessum frábæra bekk látið þá Lindu eða Ellu, formenn skemmtinefndar, vita.

Nánari upplýsingar síðar

Með kveðju
Katrín formaður áfengisnefndar